Bandalag um pólitísk málefni og varnarmál
Bandalag um pólitísk málefni og varnarmál
Bandalag um pólitísk málefni og varnarmál
Markmið Atlantshafsbandalagsins er að tryggja frelsi og öryggi aðildarríkjanna með umræðu á vettvangi stjórnmálanna og með sameiginlegum vörnum.
STJÓRNMÁL – Atlantshafsbandalagið styður við lýðræðisleg gildi og gerir aðildarríkjunum kleift að ráðfæra sig og vinna saman að varnar- og öryggismálum. Reglulegt samráðgerir aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins kleift að deila skoðunum sínum, skiptast á upplýsingum, efla traust, takast á við úrlausnarefni og koma í veg fyrir langframa átök.
HERMÁL – Atlantshafsbandalagið er skuldbundið til að leita ávallt friðsamlegra leiða við úrlausn deilumála. Ef ekki reynist unnt að leiða ágreining til lyktar með diplómatískum leiðum hefur bandalagið hernaðarlegt bolmagn til að verja öll aðildarríki sín, eins og fram kemur í 5. grein varnarsáttmálans. Það getur einnig sinnt neyðarstjórnunaraðgerðum til að stuðla að friði og stöðugleika á alþjóðavettvangi, á eigin vegum eða í samvinnu við önnur ríki og alþjóðastofnanir.